2002

Þorvaldsdalsskokkið 2002

Kvennametið bætt verulega

Að þessu sinni fór Þorvaldsdalsskokkið fram í níunda sinn laugardaginn 7. júlí í ágætis veðri, en bæði daginn áður og daginn eftir hefði þoka tálmað för manna um dalinn. Keppnisdaginn var þokan yfir sjónum en sól og logn í dalnum, en svolítil norðangola mætti mönnum síðasta spölinn. Það voru 19 manns sem tóku þátt í skokkinu og komust allir á leiðarenda. Skokkarar sem hröðuðu för um dalinn hafa horft mest fyrir fætur sér, en þeir sem gengu rólega nutu eflaust náttúrufegurðarinnar meira. Sigurvegari var hinn gamalreyndi hlaupari Sigurður P. Sigmundsson úr Hafnarfirði á tímanum 2.14.55, en hann er kominn á fimmtugsaldur. Þá var sett met í kvennaflokki, en Rannveig Oddsdóttir frá Akureyri hefur hlaupið dalinn hraðast kvenna og náði tímanum 2.36.04. Bætti hún kvennametið um 27 mínútur.

Árangur varð þessi:

Konur 16-39 ára

1 Rannveig Oddsdóttir, Akureyri 2,36,04

2 Ragna Finnsdóttir, Akureyri 3,20,40

3 Liz Bridgen, Akureyri 3,28,06

4 Lilja Finnsdóttir, Dalvík

Konur 40-49 ára

1 Helga Guðnadóttir, Akureyri 4,24,42

Karlar 16-39 ára

1 Klemenz Sæmundsson, Keflavík 2,16,00

2 Gunnar Richter, Hafnarfirði 2,34,09

3 Starri Heiðmarsson, Akureyri 2,37,04

4 Tomas Matti, Svíþjóð 2,37,04

Karlar 40-49 ára

1 Sigurður P. Sigmundsson, Hafnarfirði 2,14,55

2 Kristján Þ. Halldórsson, Kópaskeri 2,42,09

3 Torfi H. Leifsson, Hafnarfirði 2,45,14

4 Ólafur Elís Gunnarsson, Akureyri 4,26,00

5 Kristján Snorrason, Dalvík

Karlar 50-59 ára

1 Sveinn K. Baldursson, Hafnarfirði 2,45,33

2 Broddi B. Bjarnason, Egilsstöðum 3,59,04

3 Stefán Ingólfsson, Akureyri 4,26,00