2001

Þorvaldsdalsskokkið 2001

Met kvenna slegið í Þorvaldsdalsskokkinu.

Það voru um 20 þáttakendur í skokkinu að þessu sinni, sumir fóru hratt yfir en aðrir gengu í rólegheitum og nutu náttúrufegurðarinnar. Náttúran skartaði sínu fegursta, enda var nánast logn og sól skein í heiði. Töldu sumir keppendur að hitinn hefði verið það mikill að hann hefði á köflum hamlað þeim. Fljótastur gegnum dalinn að þessu sinni var Gísli Einar Árnason úr Reykjavík og var hann einungis rúmum 3 mínútum frá metinu, hljóp á 2.10.41, og er það næstbesti tími sem náðst hefur. Þá náði sigurvegari í kvennaflokki, Áslaug Helgadóttir úr Reykjavík, besta tíma sem kvennmaður hefur náð til þessa, bætti fyrra met um 4 mínútur, og hljóp á 3.03.47. Tíminn var ekki mældur nákvæmlega á göngumönnum, enda er hann ekki aðalatriði hjá þeim. Ekki er vitað annað en að allir hafi verið ánægðir að loknu Þorvaldsdalsskokkinu á þessum fagra degi.

Konur 16-39 ára

1 Hjördís Tryggvadóttir Reykjavík 3.11.08

2 Dawn Colton Bandaríkjunum 3.47.19

3 Hanna Berglind Jónsdóttir Akureyri (6.10.00)

4-5 Hugrún Felixdóttir Dalvík (7.00.00)

4-5 Rannveig E. Hjaltadóttir Dalvík (7.00.00)

Konur 40-49 ára

1 Áslaug Helgadóttir Reykjavík 3.03.47

2 Védís Baldursdóttir Akureyri (6.05.00)

Konur 50-59 ára

1-2 Ingibjörg Auðunsdóttir Akureyri (6.20.00)

1-2 Herdís Zophaníasdóttir Akureyri (6.20.00)

Karlar 16-39 ára

1 Gísli Einar Árnason Reykjavík 2.10.41

2 Marteinn Sigurðsson Reykjavík 2.17.39

3 Klemenz Sæmundsson Reykjanesbæ 2.20.17

4 Ágúst Magnússon Kópavogi 2.38.31

5 Kári Gíslason Reykjavík 2.42.25

6 Brynjar Finnsson Arnarneshreppur 2.52.47

7 Birgir Ragnarsson Reykjavík 3.03.16

8 Einar Ísfeld Steinarsson Reykjavík 3.08.52

Karlar 40-49 ára

1 Árni Árnason Seltjarnarnes 3.09.08

2 Guðbjörn Sigvaldason Mosfellsbæ 3.40.23

Karlar 50-59 ára

1 Gísli H. Friðgeirsson Reykjavík 3.17.01

2 Ólafur Tr. Kjartansson Akureyri 3.59.54