![]() Þorvalsdalsskokkið, elsta skipulagða óbyggðahlaup landsins, verður á sínum stað 4. júlí. Það stefnir í frábært hlaup og nú þegar metfjöldi þátttakenda skráður. Samstarf er við Landvættaverkefni Ferðafélags Íslands um hlaupið og verða að þessu sinni þrjú hlaup. Skráning fer fram á hlaup.is. Bolur merktur hlaupinu fyrir þá sem skrá sig fyrir miðnætti föstudaginn 26. júní. Forskráningu lýkur föstudaginn 3. júlí kl. 20:00. Nýjir samstarfsaðilar hafa nú bæst í hópinn. Eftirfarandi aðilar starfa með okkur að þessu sinni: Hauganes whale watching Nánari upplýsingar um rástíma og hlaupið verða birtar hér á síðunni viku fyrir hlaup. |
Untitled >